Hlutar vefsíðunnar birtast hugsanlega ekki rétt. Það getur verið vegna þess að JavaScript hefur verið gert óvirkt í vafranum þínum eða vegna þess að vafrinn er ekki í nýjustu útgáfu eða styður ekki síðuna okkar. Virkjaðu JavaScript eða prófaðu að opna síðuna í öðrum vafra, t.d. Chrome, Firefox eða Safari. Þú getur einnig snúið þér til persónuverndarteymis notendaþjónustu Volkswagen.

Velkomin(n) í persónuverndargátt Volkswagen AG. Hér gefum við þér yfirsýn yfir réttindi þín samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni og upplýsingar um hvernig þú getur nýtt þér þau gagnvart Volkswagen AG.

Núverandi og tilvonandi viðskiptavinir

Ef þú ert núverandi eða tilvonandi viðskiptavinur Volkswagen AG getur þú fengið upplýsingar um réttindi þín á eftirfarandi svæði. Þú telst vera núverandi eða tilvonandi viðskiptavinur Volkswagen AG ef þú hefur keypt bíl frá Volkswagen AG eða hefur t.d. skráð þig í áskrift að fréttabréfi frá Volkswagen AG.

Flotaviðskiptavinir og stórviðskiptavinir

Ef þú ert starfsmaður hjá flota- eða stórviðskiptavini hjá Volkswagen AG og ert skráð(ur) hjá okkur í tengslum við það viðskiptasamband getur þú fengið upplýsingar um það á næstu síðu hvernig þú getur nýtt réttindi þín samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni gagnvart Volkswagen AG.

Heildsalar og smásalar

Ef þú ert starfsmaður samstarfsaðila Volkswagen AG á sviði smá- eða heildsölu getur þú fengið upplýsingar um það á næstu síðu hvernig þú getur nýtt réttindi þín samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni gagnvart Volkswagen AG.

Starfsfólk Volkswagen AG

Ef þú ert núverandi eða fyrrverandi starfsmaður, starfsmaður á vegum starfsmannaleigu, aðstandandi starfsmanns, lífeyrisþegi eða umsækjandi hjá Volkswagen AG skaltu nota eftirfarandi leiðir til að senda inn beiðni samkvæmt 15. gr. almennu persónuverndarreglugerðarinnar.

Birgjar

Ef þú ert/varst starfsmaður fyrirtækis sem er skráð í ONE.KBP eða starfar/starfaðir sem starfsmaður þjónustuaðila á einhverju rekstrarsviða Volkswagen AG getur þú fengið upplýsingar um það á næstu síðu hvernig þú getur nýtt réttindi þín samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni gagnvart Volkswagen AG.

Aðrir

Ef þeir flokkar skráðra einstaklinga sem hér koma fram eiga ekki við um þig og þú ert t.d. diplómati, gestur, aðstandandi, þátttakandi í getraun eða happdrætti eða hluthafi getur þú fengið upplýsingar um það á næstu síðu hvernig þú getur nýtt réttindi þín samkvæmt almennu persónuverndarreglugerðinni gagnvart Volkswagen AG.